Útsýnið Er Fallegt
Bubbi Morthens
3:40Þurrkaður fiskur og fornar sögur finnast enn á landi hér. Þíðir vindar, vorkvöld fögur og von um frelsi handa þér. Við sjónarhringinn heimur stríðir hungrar í að gleypa þig. Auðmjúkur þú engu kvíðir allir aðrir selja sig. Erlend nöfn þau auka gróðann allir vilja klæðin fín. Tíska er markmið, troðum slóðann tíska er lífið börnin mín. McDonald eltum heim í hreysið hryggðarmynd úr augum skín. Bæta ætlar auðnuleysið aftur verður veröld fín. Kentucky Fried og kókið herja kanar Íslands opna hlið. Herraþjóð fer varla að verja né vernda landsins sálarmið. Í hulduborg er beygður álfur því barnið hans úr hamri sér að maður skóp sitt myrkur sjálfur myrkrið sjálft í huga þér. Blöðin prenta, pennar skrifa pælum aðeins meir í því. Oftast fær hún lygi að lifa leynist menning blöðum í? Stöðin viljug varpar ensku voðinn leggst á tungu þér. Það telja allir ekta lensku ensku skulum tala hér. Stjörnur koma, stjörnur fara stefnir allt í sömu átt. Menning sú er töluð tjara í tómum kagga bylur hátt.