Fjöllin Hafa Vakað
Egó
3:44Þeir hringdu í morgun sögðu að Lilla væri orðin óð. Að hún biti fólk í hálsinn drykki úr þeim allt blóð. Hún hafði sagt hún gæti ekki dottið hún hefði engan stað að detta á. Hún sagðist breytast í leðurblöku að hún flygi um loftin blá. Læknirinn var miðaldra augun í honum voru grá. Hann djönkaði sig með morfíni sagðist hafa unnið hér í fimmtán ár. Þá órólegu geymdu á deild sem var sérhönnuð fyrir þá. Það átti að setja Lillu í raflost hann bauð mér að horfa á. Stórir strákar fá raflost... Gangastúlkurnar hvæstu og sýndu í sér tennurnar. Þær skipuðu mér að fara í rúmið sögðu: tími komin á pillurnar. Ég sagði þeim að ég væri gestur að ég væri á leiðinni heim. Þær skelltu mér með látum í gólfið sögðu svo: þú ert einn af þeim. Á kvöldin kemur læknirinn segist vera vinur minn. Segir: þú verður að vera rólegur þú æsir upp öll hin. Segir að ég sé í tveggja ára meðferð hann býður mig velkominn. Segir að á morgun fái ég raflost svo að ég verði eins og öll hin! Stórir strákar fá raflost...