Hafið Er Svart

Hafið Er Svart

Jónas Sig

Длительность: 4:49
Год: 2017
Скачать MP3

Текст песни

Djúpur er minn hugur eins og hafið
Gat samt aldri hugsað meir til þín
Sátum fast í sama hugarfari
Sem byrgði okkur sýn - ástin mín

Oft mér birtist mynd af leiðarlandi
Lífi mínu og hug ég deildi með þér
Veruleikinn meiri reyndist vandi
Og vaninn setti lífsreglurnar mér

Sumir finna sína föstu hillu
Sjálfur aldrei fann ég þennan frið
Í klettunum ég klifra í leit að syllu
Klafinn þungur hangir fastur við

Verst var þó að óviljandi særa
Ykkur sem að stóðuð mér þó hjá
Megi lífið farsæld ykkur færa
Bráðum þegar farinn verð ég frá

Nú held ég út
Nú held ég út
Ú ú ú út

Hafið er svart
Hafið er svart
Hafið er svart
Hafið er kalt
Hafið er kalt
Hafið er bjart og friðsælt