Notice: file_put_contents(): Write of 644 bytes failed with errno=28 No space left on device in /www/wwwroot/muzbon.net/system/url_helper.php on line 265
Moses Hightower - Þetta Hjarta | Скачать MP3 бесплатно
Þetta Hjarta

Þetta Hjarta

Moses Hightower

Альбом: Lyftutónlist
Длительность: 3:09
Год: 2020
Скачать MP3

Текст песни

Vesen!
Þunnu hljóði þegir síminn
Dó hann, og þú einhvers staðar svekkt?

Ný boð, guðsélof!
Núna nötrar síminn
Taugin sem að tengir okkur strekkt

Það er myrkvað hús
Þetta hjarta
Ef við römbum á
Rafmagnstöflu má
Ljósum starta

Vesen!
Við deilum hektara
En hittumst eftir dúk og disk

Því hvernig lýt ég út og hvar er ég?
Þú þekkir mig af myndum, en þar er ég
Á árbakkanum, umfaðmandi fisk

Það er myrkvað hús
Þetta hjarta
Ef við römbum á
Rafmagnstöflu má
Ljósum starta

Vesen!
Kvöldið líður, klárast glösin
Kvikna ljós, og vertar ræskja sig

Oft fílast svona fundir svo furðulega
En ekki þessi hér
Viltu meta og vega
Að hittast aftur?
Það myndi gleðja mig

Það er myrkvað hús
Þetta hjarta
Ef við römbum á
Rafmagnstöflu má
Ljósum starta

Það er myrkvað hús
Þetta hjarta
Ef við römbum á
Rafmagnstöflu má
Ljósum starta

Þetta hjarta