Ofboðslega Frægur
Stuðmenn
4:12Úti í Eyjum bjó Einar kaldi er hann hér enn? Hann var öðlingsdrengur, ja svona eins og gengur um Eyjamenn. Í kvenmannsholdið kleip hann soldið klípur hann enn? Hann sigldi um sæinn, svalan æginn siglir hann enn? Allir saman nú: Tra-la-la, tra-la-la la-la, hann bjargaði sér fyrir björgin dimm, Tra-la-la, tra-la-la la-la, þær báðu hans einar fimm. Hann unni einni, Önnu hreinni, ann'ann'enn'enn? En hvar er Anna, elsku Anna? Við spyrjum konur og menn. Hann sást með Guddu, sætri buddu, í suðlægri borg, en Anna situr, ein og bitur, í ástarsorg. Allir saman nú: Tra-la-la, tra-la-la la-la, hann bjargaði sér fyrir björgin dimm, Tra-la-la, tra-la-la la-la, þær báðu hans einar fimm. Mér er sem ég sjá'ann Einar kalda, mér er sem ég sjá'ann Einar hér. Er hann Einsi kannski búinn að tjalda við hliðina á þér... Mér er sem ég sjá'ann Einar kalda, mér er sem ég sjá'ann Einar hér. Er hann Einsi kannski búinn að tjalda við hliðina á þér...