Dómínókubbar
Sveppi & Villi
3:21Hann Fjölleikafúsi Í fjölleikahúsi Lifir og leikur sér, Sá taumlausi trúður Með tennur og lúður Þjóna vill þér og mér. Hann syngur Með grettum og glettum Og gengur með fettum og brettum Og djöflast með dettum og svettum Og dinglar í táafléttum Og hoppar á hnjám Og hangir á tám Í reipum, á rám og slám. Hann er alveg ær Æpir og hlær. Öll hans leikrænu læti Líkjast ekta kæti. Heim um kvöldið hann kemur Krakkana sína lemur Og sorglega vísu semur.